Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:08 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:08 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:08 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:08 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:08 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:08 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa ráðið sumarstarfsmann sem starfa mun við glatvarmaverkefni við gagnaverið á Blönduósi. Verkefnið hlaut nýverið styrk frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og miðar að því að finna leiðir til að nýta varma sem frá gagnaverinu kemur til verðmætasköpunar.
Starfsmaðurinn heitir María Dís Ólafsdóttir og hefur hún lokið MS gráðu í lífverkfræði frá Háskóla Íslands. María Dís, sem hóf störf í síðasta mánuði, mun safna gögnum til greiningar á neyslu á matvælum á svæðinu og á landsvísu, jafnframt greina neyslubundið kolefnisspor matvæla úr ylrækt á svæðinu. Hún mun líka skoða hvað mögulegt er að framleiða mikið að matvælum miðað við gefnar forsendur um nýtanlegan glatvarma frá gagnaverinu á Blönduósi og hvað gæti verið hagkvæmast að rækta.
“Við erum gríðarlega ánægð að fá Maríu Dís til liðs við okkur í þetta spennandi verkefni á Blönduósi og vonumst til að geta nýtt niðurstöður úr hennar vinnu til enn frekari framgangs á glatvarmaverkefninu við gagnaverið, nýtt þá orku sem þar fer til spillis enn betur og um leið aukið á sjálfbærni svæðisins,“ segir Magnús Jónsson, verkefnastjóri fjárfestinga hjá SSNV á vef samtakanna.
Tengdar fréttir:
Heitt loft frá gagnaverinu gæti nýst til ylræktar
SSNV hlýtur styrk til að meta eiginleika og nýtingu glatvarma í gagnaverinu á Blönduósi
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |