Fréttir | 09. júlí 2021 - kl. 10:42
Smábæjaleikar Umf. Hvatar eru um helgina

Smábæjaleikar Umf. Hvatar á Blönduósi í knattspyrnu fara fram um helgina. Til leiks mæta knattspyrnulið yngri aldurflokka, bæði piltar og stúlkur, frá ýmsum bæjar- og sveitarfélögum víðsvegar af landinu. Búist er við um 400 þátttakendum og um 300 aðstandendum þeirra á leikana og því má gera ráð fyrir miklu fjöri í bænum um helgina. Knattspyrnudeild Hvatar stendur fyrir þessu vinsæla og eftirsótta knattspyrnumóti sem nú er haldið í 17. sinn. Líklegt er að um 70-80 sjálfboðaliðar verði við störf á mótinu.

Móttaka keppnisliða fer fram í Félagsheimilinu á Blönduósi milli klukkan 18-22 í dag. Setning leikanna fer fram laugardagsmorguninn 10. júlí klukkan 8:00 á íþróttavellinum og hefst mótið í kjölfarið. Kvöldskemmtun verður í íþróttahúsinu þennan dag og hefst hún klukkan 19:30. Jógvan og Friðrik Ómar ætlar að skemmta keppendum og öðrum gestum og eru allir velkomnir. Mótslok og verðlaunaafhending eru áætluð klukkan 16:00 á sunnudaginn.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga