Fréttir | 10. júlí 2021 - kl. 15:04
Bergþór leiðir lista Miðflokksins

Framboðslisti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi var samþykktur á félagsfundi flokksins á fimmtudaginn. Bergþór Ólason, þingmaður leiðir listann en hann var einnig oddviti flokksins í kjördæminu á síðasta kjörtímabili.

Sigurður Páll Jónsson sem setið hefur á þingi fyrir flokkinn sækist eftir endurkjöri og skipar annað sæti listans. Hin 24 ára gamla Finney Aníta Thelmudóttir kemur ný inn og skipar þriðja sæti listans.

Eftirfarandi aðilar skipa efstu sex sætin.

  1. sæti. Bergþór Ólason.
  2. sæti. Sigurður Páll Jónsson.
  3. sæti. Finney Aníta Thelmudóttir.
  4. sæti. Ílóna Sif Ásgeirsdóttir.
  5. sæti. Högni Elfar Gylfason
  6. sæti. Hákon Hermannsson.
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga