Mynd: FB/Veraldarvinir
Mynd: FB/Veraldarvinir
Fréttir | 14. júlí 2021 - kl. 09:25
Veraldarvinir 20 ára - Opið hús

Sjálfboðaliðasamtökin Veraldarvinir eru 20 ára á þessu ári. Þau verða með opið hús gamla í símstöðvarhúsinu á Brú í Hrútafirði dagana 16.-18. júlí frá klukkan 12 til 18. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir. Upplagt er fyrir þá sem koma að sunnan og ætla að skella sér á Húnavöku á Blönduósi að líta við á Brú í afmæliskaffi.

Veraldarvinir eru samtök sem stofnuð voru árið 2001 og stuðla að náttúruvernd, frið, vináttu og alþjóðlegum skilningi meðal fólks sem hefur áhuga á að dvelja á Íslandi á gagnlegan hátt. Helstu verkefni sem Veralandarvina á Íslandi býður eru skammtíma- og langtíma sjálfboðaliðastarf, sumarbúðir fyrir unglinga, skiptinám og fræðsluferðir.

Veraldarvinir eru með heimasíðu og facebooksíðu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga