Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:26 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:26 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:26 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:26 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:26 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:26 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Barnamenningarhátíðinni Skúnaskralli hefur borist fjölmargar umsóknir og uppástungur um viðburði sem eiga bæði rætur að rekja til aðila innan svæðisins og utan þess. Nýverið var auglýst eftir viðburðum á hátíðina og nú þegar hafa yfir 30 viðburðir verið staðfestir og fleiri eiga eftir að bætast við, að því er fram kemur á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Íslenski dansflokkurinn mun m.a. sækja hátíðina heim, Þjóðleikhúsið, Hringleikur, Handbendi-brúðuleikhús og margir, margir fleiri. Haldin verða ýmiskonar námskeið, svo sem trúðanámskeið og söngnámskeið og einnig alls kyns smiðjur, svo sem tröllasmiðja, listasmiðja og sögusmiðja. Lagt er upp með að dreifa viðburðum um Norðurland vestra allt svo börn á svæðinu öllu hafi gott aðgengi að sem flestum tegundum viðburða.
Barnamenningarhátíðin verður haldin dagana 12.-24. október á Norðurlandi vestra. Hátíðin er áhersluverkefni sóknaráætlunar landshlutans en hún fékk jafnframt veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur stuðnings sveitarfélaganna á starfssvæðinu. Hátíðin er vettvangur fyrir menningu fyrir börn, menningu með börnum og menningu skapaða af börnum. Verður þetta í fyrsta skiptið sem hátíð af þessum toga verður haldin á Norðurlandi vestra. Verkefnisstjórar eru Auður Þórhallsdóttir, Ástrós Elísdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir.
Hægt er að fylgjast með dagskrá viðburða, sem kynnt verður innan tíðar á heimasíðu hátíðarinnar https://skunaskrall.is/.
Tengd frétt:
Skúnaskrall og Handbendi fá styrk úr Barnamenningarsjóði Íslands.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |