Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:51 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:51 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:51 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:51 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:51 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:51 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman verður 200 og nálægðarregla tekin upp þegar nýjar reglur um takmarkanir á samkomum taka gildi sunnudaginn 25. júlí. Þetta er meginefni nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 sem hugsaðar eru til skamms tíma á meðan verið er að ná tökum á mikilli fjölgun smita síðustu daga. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis, með þeirri breytingu að höfðu samráði við sóttvarnalækni að hámarksfjöldi í erfidrykkjum verður 200 manns.
Í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis er þegar hafinn undirbúningur að því að bjóða þeim sem bólusettir hafa verið með bóluefni Janssen seinni bólusetningu í ágúst. Einnig verður einstaklingum með undirliggjandi ónæmisvandamál og þeim sem talið er að tveir skammtar veiti ekki nægilega góða vörn gegn COVID-19 boðinn þriðji skammtur bóluefnis.
Samkomutakmarkanir taka gildi 25. júlí og gilda til og með 13. ágúst.
HELSTU TAKMARKANIRNAR ERU ÞESSAR:
- Almennar fjöldatakmarkanir verða 200 manns. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin.
- Nándarregla verður almennt 1 metri. Börn fædd 2016 og síðar verði undanþegin.
- Grímuskylda verður tekin upp innanhúss og þar sem ekki er unnt að viðhafa 1 metra reglu. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin.
- Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum verði 200.
- Heilsu- og líkamsræktarstöðvum sem og sund- og baðstöðum verður heimilt að hafa opið fyrir 75% af hámarksfjölda leyfilegra gesta. Sameiginlegan búnað skal sótthreinsa milli notenda.
- Söfnum verður heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta.
- Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna heimilar með og án snertinga með 100 manna hámarksfjölda. Hámarksfjöldi áhorfenda 200 manns í rými sem skulu skráðir í sæti. Veitingasala óheimil á keppnisstöðum.
- Æfingar og sýningar sviðslista og sambærilegrar starfsemi heimilar með allt að 100 manns á sviði. Hámarksfjöldi áhorfenda 200 manns í rými, svo sem í bíóhúsum. Heimilt að hafa hlé en enga veitingasölu í hléum. Skrá skal gesti í sæti.
- Hámarksfjöldi gesta við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga verður 200.
- Opnunartími veitingastaða, skemmtistaða o.þ.h. verður til kl. 23:00 (tæma þarf staði fyrir miðnætti) og hámarksfjöldi gesta 100 manns í rými. Vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Skrá skal gesti.
- Tjaldstæði og hjólhýsasvæði fari eftir leiðbeiningum sóttvarnalæknis og Ferðamálastofu.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |