Gaman á golfnámskeiði
Gaman á golfnámskeiði
Fréttir | 18. ágúst 2021 - kl. 20:31
Golfnámskeið barna
Frá Golfklúbbnum Ós

Golfnámskeiði barna á aldrinum 6 til 14 ára lauk nýverið með golfmóti. Atli Freyr Rafnsson hefur verð með kennsluna einu sinni í viku í  sumar. Foreldrar voru hvattir til að koma með og var mjög góð þátttaka. Nítján krakkar voru í kennslu í sumar og er það mesta þátttaka í langan tíma.

Eftir mót var verðlaunaafhending og boðið upp á pizzur. Góður dagur að baki með upprennandi golfurum og foreldrum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga