Tilkynningar | 27. ágúst 2021 - kl. 09:35
Opið hús í Textílmiðstöðinni 27.-29. ágúst
Frá Textílmiðstöð Ãslands

Helgin verður viðburðarík í Textílmiðstöðinni á Blönduósi. Við bjóðum ykkur velkomin í opið hús í TextílLabinu að Þverbraut 1 föstudag (27.8), laugardag (28.8) og sunnudag (29.8). Á staðnum eru geislaskeri, vínyl prentari, útsaumsvél, nálaþæfingarvél og stafrænn vefstóll. Smiðjustjóri mun aðstoða við notkun á smiðjunni. Aðgengi er frítt, en greitt fyrir það efni sem notað er.

Einnig verður haldinn „pop-up" sýning listamanna í Ós Textíllistamiðstöð laugardag og sunnudag, 11:00-18:00. Vefarar, litarar, prjónarar og sjónlistamenn frá Kanada, Bandaríkjunum, Hollandi, Chile og Ítalíu bjóða ykkur að koma og skoða listaverkin sem eru innblásin af íslensku umhverfi, menningu og sögu. Þau verða til sýnis í húsnæði Textílmiðstöðvarinnar í Kvennaskólanum (Árbraut 31) og TextílLab (Þverbraut 1). Boðið verður uppá veitingar á sunnudaginn á milli 16-18.

Verkefnið "Þráðhyggja" verður kynnt á sama tíma. Það fjallar um að lengja líftíma textíls og endurnýtingu með þekktum íslenskum aðferðum, unnið af hönnuðunum Sólveig Hansdóttir og Berglind Ósk Hlynsdóttir. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði Námsmanna og unnið í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands og Listaháskóla Íslands.

Á laugardag og sunnudag verða síðan haldin þriggja tíma námskeið "Wool Interactions / ullarsamskipti" (sama námskeið kennt tvisvar) undir leiðsögn Zoe Romano. Námskeiðin fara fram á ensku - sjá nánari kynningu og skráningu á heimasiðu Textílmiðstöðvarinnar, www.textilmidstod.is.

Vinsamlegast athugið að gestir verða að bóka tíma í Opið Hús í TextílLab og "Wool Interactions" - það er hægt á heimasíðu Textílmiðstöðvarinnar: https://www.textilmidstod.is/is/vefverslun/courses.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga