Fréttir | 23. ágúst 2021 - kl. 14:28
Auglýst eftir styrkumsóknum

Félagasamtök og einstaklingar í Húnaþingi vestra sem hafa hug á að sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári geta nú fyllt út þar til gert eyðublað og sent ásamt fylgigöngum til skrifstofu sveitarfélagsins að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is. Frestur er til 10. september næstkomandi.

Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Húnaþings vestra undir stjórnsýsla/eyðublöð.

Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem Húnaþing vestra veitti styrk til á árinu 2020 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun styrksins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga