Fréttir | 24. ágúst 2021 - kl. 20:48
Alþjóðleg brúðulistahátíð á Hvammstanga

Alþjóðlega brúðulistahátíðin Hvammstangi International Puppetry Festival eða HIP Fest fer fram í annað sinn dagana 8.-10. október næstkomandi. Á hátíðina koma á þriðja tug erlendra listamanna frá átta löndum sem bjóða upp á fjölda sýninga og vinnusmiðja, auk fyrirlestra og kvikmyndasýninga með umræðum við listamennina á eftir.

Í tilkynningu segir að HIP Fest sé einstök viðbót í menningarlíf landsmanna, enda eina brúðulistahátíð landsins. HIP Fest var valinn menningarviðburður ársins á Norðurlandi vestra árið 2020 og skipuleggjandi hátíðarinnar, Handbendi – Brúðuleikhús, er núverandi Eyrarrósarhafi, en Eyrarrósin eru verðlaun sem veitt eru framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni.

„Þrátt fyrir verulegar samkomutakmarkanir á hátíðinni í fyrra tókst hún einstaklega vel við mikla ánægju þátttakenda og áhorfenda. Brúðulistin er fjölbreytt og fornt listform sem stöðugt haslar sér meiri völl í menningarlífi landsins. Á hátíðinni má líta fjölbreyttar sýningar fyrir alla aldurshópa, sem nýta sér öll blæbrigði listformsins,“ segir í tilkynningunni.

Miðasala fer fram á www.tix.is og dagskrá hátíðarinnar má gaumgæfa á heimasíðu hennar, www.thehipfest.com.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga