Íslandsmeistarar 2021. Ljósm. Erla Jakobsdóttir
Íslandsmeistarar 2021. Ljósm. Erla Jakobsdóttir
Hverjir eru bestir?
Hverjir eru bestir?
Fréttir | 30. ágúst 2021 - kl. 20:54
Kormákur/Hvöt Íslandsmeistarar í knattspyrnu í 4. flokki karla 8 manna liða

Sameignilegt lið Kormáks og Hvatar í 4. flokki karla 8 manna lið í knattspyrnu gerði sér lítið fyrir og sigraði úrslitakeppnina sem fór fram um helgina og eru því Íslandsmeistarar 2021. Liðið lék þrjá leiki við lið ÍA/Skallagríms, Tindastól og Grindavík. Sigur vannst í leikjunum við ÍA/Skallagrím og Grindavík og jafntefli í leiknum við Tindastól.

Glæsilegur árangur hjá þessum efnilegu drengjum. Þjálfari liðsins er Jóhann Magni. Erla Jakobsdóttir var svo vingjarnleg að senda okkur myndir af köppunum.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga