Ljósm: www.visitakureyri.is
Ljósm: www.visitakureyri.is
Fréttir | 31. ágúst 2021 - kl. 21:47
Frisbígolfvöllur tekinn í notkun á fimmtudaginn á Blönduósi

Fimmtudaginn 2. september kl. 18:00 verður frisbígolfvöllurinn á Blönduósi formlega vígður í Fagrahvammi. Fulltrúar frá Frisbígolfþjónustu Akureyrar munu koma og kynna íþróttina, helstu grunnatriði, köst og leikreglur. Kynningin tekur tæpa klukkustund. Í lokin verður spilaður hringur á nýja vellinum.

Kynningin er ókeypis og hægt verður að fá lánaða diska á staðnum, einnig verða þeir með diska til sölu. Hvetjum alla, unga sem aldna að koma og prófa. Frisbígolfvöllurinn er svo opinn allt árið um kring fyrir alla.

Frisbígolf er frábær útivera og tilvalin fjölskylduskemmtun, það eina sem þarf að gera er að mæta með frisbídiska og hefja leik. Frisbígolf er eins og nafnið gefur til kynna afþreying þar sem golf er spilað með frisbídiskum. Sportið er sérlega hentugt fyrir alla aldurshópa og auðvelt fyrir hvern sem er að ná tökum á því. 

Sveitarfélagið gerðist aðili að samning um heilsueflandi samfélag en markmiðið með því er að hafa heilsu íbúa í fyrirrúmi í öllum málaflokkum og er uppsetning frisbígolfvallar eitt skref í þeirri vinnu. 

Hægt er að skoða leikreglur og þá velli sem til eru inn á Heimasíðu frisbígolfsambands Íslands www.folf.is.

Hér má lesa nánar um íþróttina https://www.folf.is/hvad-er-folf/.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga