Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 04. september 2021 - kl. 09:47
Auglýst eftir tilnefningum vegna samfélagsviðurkenninga í Húnaþingi vestra

Félagsmálaráð Húnaþings vestra leitar til íbúa sveitarfélagsins um ábendingar vegna samfélagsviðurkenninga fyrir árið 2019-2021. Auglýst eftir tilnefningum um aðila sem eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín eða störf í þágu samfélagsins. Allir koma til greina, einstaklingar jafnt sem fyrirtæki og félagasamtök, sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu látið gott af sér leiða og verið öðrum góð fyrirmynd.

Tilnefningar skulu berast fjölskyldusviði sveitarfélagsins með rökstuðningi, fólki er frjálst að senda inn nafnlausar tilnefningar.

Ákvörðun um hverjum skal veita viðurkenningu tekur fjölskyldusvið í samstarfi við félagsmálaráð sem sér um að veita viðurkenninguna

Tilkynning skal berast til Jennýjar Þ. Magnúsdóttur á netfangið: jenny@hunathing.is eða senda bréf í Ráðhúsið merkt; samfélagsviðurkenning, fyrir mánudaginn 20. september nk. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga