Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 28. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:30 0 0°C
Laxárdalsh. 10:30 0 0°C
Vatnsskarð 10:30 0 0°C
Þverárfjall 10:30 0 0°C
Kjalarnes 10:30 0 0°C
Hafnarfjall 10:30 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
Tilkynningar | 16. september 2021 - kl. 16:09
Fá rými til að vaxa á Norðurlandi
Fréttatilkynning

Fyrstu regnhlífarsamtök nýsköpunar á landsbyggðinni hafa verið sett á laggirnar undir nafninu Norðanátt. Um er að ræða samstarfsverkefni stuðningsaðila í nýsköpunarumhverfinu á Norðurlandi sem miða að því að skapa kraftmikið umhverfi í landsfjórðunginum fyrir nýsköpun. Að verkefninu koma Eimur, SSNV, SSNE, Nýsköpun í norðri og RATA. Norðanáttar leggur áherslu á  nýsköpun á sviði sjálfbærni, orku, vatni og mat.

Norðurland er ríkt af auðlindum sem styðja við mat-, vatn- og orkutengda nýsköpun og þar eru einnig sterkur hópur frumkvöðla. Þetta endurspeglast meðal annars í  árangri frumkvöðla af svæðinu í Matvælasjóði, en tæplega 30% úthlutunar sjóðsins í ár fer beint til frumkvöðla á Norðurlandi.

"Síðustu misseri hefur nýsköpun í matvælaframleiðslu og sjálfbærri nýtingu orkuauðlinda vaxið fiskur um hrygg. Það er því sannarlega réttur tímapunktur að setja á stofn Norðanátt, sem mun gegna lykilhlutverki í því að koma öflugum hugmyndum á næsta stig" (Sveinn Margeirsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps)

Norðanátt er hreyfiafl sem er ætlað að styrkja frumkvöðla á öllum stigum og skapa sterkt samfélag nýsköpunar á Norðurlandi. Verkefnið hlaut styrk frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu til að þróa verkefnið áfram en markmiðið er að vera með sjálfbært kerfi fyrir frumkvöðla sem verður síðan til verðmætasköpunar í samfélaginu.

Norðanátt byggir á hringrás árlegra viðburða þar sem frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar, vaxa og ná lengra. Hringrásin samanstendur af lausnamóti, vinnusmiðju, viðskiptahraðli og fjárfestamóti. 

Næsti liður í hringrásinni er viðskiptahraðallinn Vaxtarrými. Verkefnið er sérhannað með þarfir teymanna sem taka þátt í huga og hafa þau þannig áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða. Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Norðurlandi, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli. Hraðallinn fer að mestu leyti fram á netinu sem hentar frumkvöðlum á landsbyggðinni vel þar sem þau er staðsett á mismunandi svæðum á Norðurlandi. Jafnframt hittast teymin fjórum sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi.

"Samstarfið, sem er í anda klasa stefnunnar, er mikilvægur liður í að byggja upp samheldið teymi sérfræðinga á svæðinu sem allir hafa það markmið að styðja við bakið á frumkvöðlum og nýsköpun og þannig verðmætasköpun á Norðurlandi. Við erum sterkari saman og trúum því að við séum á fyrstu metrunum að skapa kröftugt og eftirsóknarvert umhverfi nýsköpunar á svæðinu þar sem við getum nýtt auðlindir okkar til fullnustu, stutt frumkvöðla við uppbyggingu viðskiptatækifæra og dregið að sérfræðinga sem upplifa svæðið sem áhugaverðan kost til að setjast að á. Allt í samvistum við náttúruna, fólkið og auðlindirnar sem við erum svo rík af. Framtíðin er björt á Norðurlandi" (Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Eims)

Leitað er eftir öflugum fyrirtækjum og verkefnum sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Norðanáttina til að vaxa. Tekið er við umsóknum á vef Norðanáttar www.nordanatt.is

Upptöku af kynningarfundi er að finna hér

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið