Tilkynningar | 22. september 2021 - kl. 09:00
Frá Þingeyraklaustursprestakalli

Fjölskyldumessa og Kveðjumessa í Blönduóskirkju sunnudaginn 26. september 2021 klukkan 17. Í messunni kveður sr. Úrsúla Árnadóttir söfnuðinn en hún hefur þjónað í prestakallinu síðastliðin tvö ár í leyfi sr. Sveinbjörns R. Einarssonar. Kór Blönduóskirkju syngur undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner kórstjóra og organista.

Fermingarbörn 2020, 2021 og 2022 eru hvött til að mæta í messuna ásamt ættingjum og vinum. Altarisganga.

Bryndís Valbjarnardóttir sóknarprestur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga