Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:55 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:55 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:55 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:55 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:55 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:55 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Verktakafyrirtækið Ístak hefur kært ákvörðun Vegagerðarinnar um að ganga til samninga við Skagfirska verktaka, sem áttu lægsta tilboðið í byggingu nýs Þverárfjallsvegar milli Blönduóss og Skagastrandar og Skagastrandarvegar um Laxá. Meðan málið er til meðferðar hjá kærunefnd útboðsmála verður ekki skrifað undir samning eins og til stóð. Sagt er frá þessu á vef Feykis.
Tilboð í verkið komu frá þremur aðilum; Ístaki hf. í Mosfellsbæ, Borgarverki ehf. í Borgarnesi og Skagfirskum verktökum ehf. á Sauðárkróki. Vegagerðin skilaði kærunefndinni greinargerð í gær, þar sem óskað er eftir því að fá heimild til að halda innkaupaferlinu áfram en meðan kæran er til meðferðar hefur samningsgerðin verið stöðvuð eins og skylt er samkvæmt lögum.
Stefán Erlendsson, forstöðumaður lögfræðideildar Vegagerðarinnar, vonast til að kæruferlið komi ekki til með að tefja verkið. „Við vonum að kærumálið fari sem hraðast í gegn en allt ferlið er stopp á meðan kæran er til meðferðar. Við höfum óskað eftir því við kærunefndina að hún heimili okkur að halda ferlinu áfram og ganga frá samningi. Við vonumst eftir því að fá einhver viðbrögð við því innan skamms,“ segir hann í samtali við Feyki.
Hann segir kæruna snúast í grófum dráttum um það að kærandi véfengir að lægstbjóðandi hafi uppfyllt hæfiskröfur sem skilgreindar eru í útboðslýsingu og þ.a.l. væri Vegagerðinni ekki heimilt að semja við lægstbjóðanda. Samkvæmt því telur Ístak fyrst og fremst Skagfirska verktaka ekki hafa reynslu af sambærilegu verki.
Sjá nánari umfjöllun á vef Feykis.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |