Fréttir | 06. október 2021 - kl. 09:35
Opnað fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra. Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra kemur fram að umsóknarfrestur er til klukkan 16 föstudaginn 12. nóvember næstkomandi. Sótt er um rafrænt á Sóknaráætlun Norðurlands vestra. Umsækjendur skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Umsækjendur eru hvattir til þess að kynna sér vel verklags- og úthlutunarreglur. Viðtalstímar/vinnustofur verða auglýstar þegar nær dregur.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna hér

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga