Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:50 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarfélögin Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær og Skagabyggð auglýsa í dagblöðum helgarinnar laus til umsóknar embætti byggingarfulltrúa og embætti skipulagsfulltrúa á nýrri skrifstofu skipulags- og byggingarmála í Húnavatnssýslum. Starfsstöðvar eru tvær, á Hvammstanga og Blönduósi, og þjóna fulltrúarnir öllu svæðinu.
Einnig er auglýst eftir starfsfólki í tvær stöður, 50% starfshlutfall á hvorri starfsstöð, með möguleika á hærra hlutfalli. Um er að ræða fjölbreytt og áhugaverð störf í lifandi umhverfi, eins og segir í auglýsingunni.
Byggingarfulltrúi:
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sjá um skipulags- og byggingarmál sveitarfélaganna
- Gerð áætlana og eftirfylgni, mælingar og úttektir
- Undirbúa fundi skipulags- og umhverfisráðs sveitarfélaganna og fylgja eftir niðurstöðum þeirra
- Ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa
- Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslu sveitarfélaganna sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Löggilding sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010
- Þekking og reynsla á sviði byggingarmála
- Þekking og reynsla af úttektum og mælingum
- Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingarreglugerð
- Þekking og reynsla af á opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Metnaður, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar
- Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
Skipulagsfulltrúi:
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón með skipulagsmálum sveitarfélaganna
- Rekstur skipulagsmála ásamt upplýsingagjöf og ráðgjöf við m.a. íbúa, kjörna fulltrúa, hönnuði og verktaka um skipulagsmál
- Gerð áætlana og eftirfylgni
- Útsetningar lóða, skráning lands/lóða
- Undirbúningur funda skipulagsnefnda, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála •
- Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar sem sinna verkefnum á sviði skipulagsmála
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun og sérhæfing skv. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
- Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er skilyrði
- Þekking og reynsla af stjórnun og áætlanagerð æskileg
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Metnaður, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar
- Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
Starfsfólk á skrifstofu skipulags- og byggingarmála (50% starfshlutfall):
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Móttaka og skráning erinda
- Skönnun teikninga og skráning
- Undirbúningur funda og ritun fundargerða
- Svörun erinda
- Önnur verkefni í stjórnsýslunni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi. Háskólamenntun er kostur
- Reynsla af skrifstofustörfum
- Reynsla af skjalavörslukerfinu One systems er kostur
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og góðir samstarfshæfileikar
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Nánari upplýsingar um störfin veitir Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |