Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:42 0 0°C
Laxárdalsh. 20:42 0 0°C
Vatnsskarð 20:42 0 0°C
Þverárfjall 20:42 0 0°C
Kjalarnes 20:42 0 0°C
Hafnarfjall 20:42 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Við Vatnsdalsá
Við Vatnsdalsá
Fréttir | 14. október 2021 - kl. 15:04
Laxveiðitímabilinu lokið

Laxveiðitímabilinu er lokið í flestum ám landsins þetta sumarið. Í sjö helstu laxveiðiánum í Húnavatnssýslum veiddust samtals 4.550 laxar og er það 156 löxum meira en í fyrra þegar 4.394 laxar veiddust. Samkvæmt lista Landsambands veiðifélaga yfir 75 aflahæstu laxveiðiár landsins veiddist mest í Miðfjarðará af húnvetnsku ánum, 1.796 laxar sem er fjölgun um 71 lax frá fyrra ári. Alls veiddust 737 laxar í Víðidalsá en í fyrra veiddust 546 laxar í ánni.

Laxá á Ásum endaði í 600 löxum sem er 76 löxum færra en í fyrra. Blanda endaði í 418 löxum en í fyrra veiddust þar 475 laxar. Vatnsdalsá endaði í 427 löxum sem er átta löxum meira en í fyrra og Hrútafjarðará og Síká enduðu í 371 laxi sem er einum laxi minna en í fyrra. Laxveiðin í Svartá í sumar endaði í 201 laxi en í fyrra veiddust þar 190 laxar.

Af helstu laxveiðiám landsins hefur mest veiðst í Rangánum tveimur, ytri og eystri en í þeim á er enn verið að veiða lax. Ytri-Rangá stendur í 3.355 löxum og Eystri-Rangá í 3.201 laxi. Miðfjarðará er í þriðja sæti yfir aflahæstu ár landsins og er efst á lista þeirra vatnakerfa á landinu sem byggja veiði ekki alfarið á seiðasleppingum.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið