Bygging rís á Miðholti. Mynd: FB/Auðunn Blöndal.
Bygging rís á Miðholti. Mynd: FB/Auðunn Blöndal.
Fréttir | 21. október 2021 - kl. 11:13
Mikil uppbygging á Blönduósi vekur verðskuldaða athygli

Mikil uppbygging á Blönduósi vekur víða athygli en þar er nú á fimmta þúsund fermetrar í byggingu undir margvíslegan iðnað. Á vef Feykis er fjallað um þessi jákvæðu tíðindi og rætt við Valdimar O. Hermansson bæjarstjóra. Á Miðholti er stór bygging að rísa en hún er um 1.800 fermetrar. Valdimar segir að búið sé að selja öll bilin í byggingunni, sem séu misstór, og að þau muni meðal annars hýsa Björgunarsveitina Blöndu og nokkra verktaka. Valdimar segir að eftirspurnin hafi verið það mikil að þegar sé farið að huga að öðru húsi á sama svæði sem skipulagt er fyrir þjónustu og léttan iðnað.

Auk hússins á Miðholti er verið að byggja fyrsta áfanga af þremur fyrir framleiðslu líftæknifyrirtækisins Prótis sem er í eigu Vilko og Náttúrusmiðjunnar. Það sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á lífvirku fiskprótíni úr villtum íslenskum þorski. Sá áfangi er um 440 fermetrar en verður 1.200 fermetrar í heildina.

Á athafnasvæði gagnaversins er verið að byggja 1.200 fermetra hús og til stendur að byggja annað eins á næsta ári. Þær byggingar eru 500 fermetra stærri en þau hús sem fyrir eru. Valdimar segir að rafmagnsskortur sé farinn að hamla frekari stækkun versins en til standi að funda með Landsvirkjun og Landsneti í næstu viku til að reyna að flýta því ferli. Vonir standi til að hægt verði að tengja beint við Blönduvirkjun.

Fram kemur hjá Valdimar að síðustu tvö ár hafi 14 íbúðir verið í byggingu á Blönduósi, tvö fimm íbúða raðhús við Sunnubraut og Smárabraut og tvö parhús og hafi nú þegar verið flutt inn í annað þeirra. Þá segir Valdimar að verið sé að breyta stóru húsi í tvær íbúðir við Árbraut. Meira sé í pípunum hjá Blönduósbæ þar sem nýtt hverfi, sem þegar sé búið að deiliskipuleggja, verði brátt frumsýnt. Ekki verði þó byrjað á gatnagerð fyrr en fyrstu lóðirnar hafi selst.

Sjá nánari umfjöllun á Feyki.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga