Mynd: ssnv.is
Mynd: ssnv.is
Fréttir | 22. október 2021 - kl. 08:17
Kanna raunverulega stöðu fjarskiptamála í dreifbýli á Norðurlandi vestra

Samgöngu- og innviðanefnd Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur sent út póstkort sem berast á til allra bæja í dreifbýli á starfssvæði samtakanna. Kortið inniheldur ósk um þátttöku í könnun sem gefa á betri upplýsingar um raunverulega stöðu fjarskiptamála í dreifbýli.

Á ársþingi SSNV í apríl 2021 var skipuð samgöngu- og innviðanefnd sem hefur það hlutverk að endurskoða og uppfæra samgöngu- og innviðaáætlun Norðurlands vestra frá árinu 2019. Hluti af vinnu nefndarinnar er að skoða raunverulega stöðu fjarskipta á starfssvæðinu líkt og gert var þegar gildandi áætlun var unnin.

Á vef SSNV segir að staða mála í þéttbýli liggi nokkuð vel fyrir en staða í dreifbýlinu sé ekki alveg eins ljós. Fyrirliggjandi séu mælingar Póst- og fjarskiptastofnunar en þær gefi ekki raunsanna mynd af stöðu mála þar sem mælingar þeirra séu gerðar við bestu mögulegu skilyrði á þjóðvegi eða stofn/tengivegi. Oft sé það svo að þegar komið er heim að bæjum sé staðan allt önnur.

Könnunin er rafræn og hægt að komast inn á hana hér.  

Fyrir þá sem óska að taka þátt í könnuninni en geta ekki nýtt sér rafrænar lausnir er hægt að hringja í síma 419-4550 og óska eftir að fá könnunina senda á pappírsformi.

Nóg er að eitt svar berist frá hverjum bæ. Það er hins vegar mikilvægt að svör berist frá sem flestum bæjum svo að sú mynd sem upp verður dregin af stöðu fjarskiptamála í dreifbýli á Norðurlandi vestra verði eins rétt og kostur er, að því er segir á vef SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga