Bláa línan sýnir ný vegastæði. Mynd: vegagerdin.is
Bláa línan sýnir ný vegastæði. Mynd: vegagerdin.is
Fréttir | 23. október 2021 - kl. 15:31
Framkvæmdleyfi gefið út fyrir Þverárfjallsveg í Refasveit og Skagastrandarveg um Laxá

Skipulagsfulltrúi Blönduósbæjar og Skagabyggðar hefur gefið út framkvæmdaleyfi framkvæmda við Þverárfjallsveg í Refasveit og Skagastrandarveg um Laxá. Framkvæmdin felur í sér byggingu nýs Þverárfjallsvegar frá Hringvegi austan við Blönduós að núverandi Þverárfjallsvegi skammt sunnan við núverandi brú á Laxá. Einnig verður byggður vegur norðaustur frá nýjum Þverárfjallsvegi, yfir nýja brú yfir Laxá og inn á núverandi Skagastrandarveg norðan við Höskuldsstaði.

Um er að ræða lengingu á Þverárfjallsvegi um 8,5 km og tengingu við Skagastrandarveg uppá 3,3 km. Vegurinn verður af vegtegund C8, átta metra breiður með sjö metra breiðu slitlagi. Brú yfir Laxá í Refasveit verður 109 metra löng, tíu metra breið með níu metra breiðri akstursbraut. Einnig verða gerðar nýjar heimreiðar að bæjum á leið vegarins. Allt að sjö námur verða notaðar í nágrenni vegstæðisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Blönduósbæjar.

Tengdar fréttir:

Útboð Þverárfjallsvegar kært
Tilboð opnuð í nýjan Þverárfjallsveg
Vegagerðin býður út Þverárfjallsveg í Refasveit og Skagastrandarveg um Laxá
Auglýsing um skipulagsmál í Blönduósbæ

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga