Fréttir | 25. október 2021 - kl. 18:18
Kosið um sameiningu Blönduóss og Húnavatnshrepps 19. febrúar 2022

Áætlað er að kosning um sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps fari fram 19. febrúar á næsta ári og að kynningarfundir um sameininguna verði haldnir í sveitarfélögunum í lok janúar eða í byrjun febrúar. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna tveggja hefur tekið til starfa og verða upplýsingar um verkefnið aðgengilegar á vefnum Húnvetningur en síðan er núna í endurskoðun.

Í samstarfsnefndinni sitja Guðmundur Haukur Jakobsson, Jón Örn Stefánsson og Arnrún Bára Finnsdóttir fyrir hönd Blönduósbæjar og Jón Gíslason, Ragnhildur Haraldsdóttir og Þóra Sverrisdóttir fyrir hönd Húnavatnshrepps.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga