Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV og Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri Húnavatnshrepps undirrituðu samninginn. Mynd: ssnv.is
Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV og Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri Húnavatnshrepps undirrituðu samninginn. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 26. október 2021 - kl. 11:34
Textíll á Húnavöllum - áhersluverkefni 2021

Textíll á Húnavöllum er heiti á áhersluverkefni sem fengið hefur stuðning úr Sóknaráætlun Norðurlands vestra og Byggðaáætlun, samtals 12 milljónir króna. Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið og felst það í uppsetningu tækjabúnaðar til ýmiss konar textílvinnslu og námskeiðahalds á Húnavöllum fyrir hópa, innlenda sem erlenda.

Textílmiðstöð Íslands verður falin framkvæmd verkefnisins og mun nýta aðstöðuna fyrir hópa sem sækja miðstöðina heim, svo sem fagfólk í textíl sem og skólahópa víðsvegar að. Góð gistiaðstaða er á Hótel Húna á Húnavöllum sem mun nýtast þátttakendum á námskeiðunum vel.

Gert er ráð fyrir að verkefninu verði lokið um mitt ár 2022 og aðstaðan verði þá tilbúin til notkunar.

Sagt er frá þessu á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga