Fréttir | 29. október 2021 - kl. 15:26
Fyrirlestrar í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi

Haldnir verða tveir áhugaverðir fyrirlestrar í Heimilisiðnaðarsafninu, laugardaginn 30. október klukkan 14. Jón Torfason flytur fyrirlesturinn „Saga af sulli“ og er þar rakin saga ungs manns frá ofanverðri 19. öld sem veikist af sullaveiki. Fyrirlesturinn byggir á rannsókn þar sem fetað var í slóð hins unga manns. Sigríður Sigurðardóttir, fyrrum safnvörður Byggðasafnsins í Glaumbæ, flytur fyrirlestur um „Þrif í torfbæjum.“

Fyrirlestur Sigríðar fjallar um þrifanaðarhætti á torfbæjartímum. Skoðað er hvernig torfhús voru þrifin, hvernig fataþvottar fóru fram og hvernig fólk þreif sjálft sig. Fyrirlesturinn byggir á riti Sigríðar “Þrif og þvottar í torfbæjum” sem gefið var út árið 2016.

Hér er á ferðinni góðir og fróðlegir fyrirlestrar sem segja má að kallist á og vert er á að hlýða.

Að þeim loknum er boðið upp á kaffi og spjall og er aðgangur ókeypis.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga