Frá Blönduósi. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Frá Blönduósi. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Fréttir | 01. nóvember 2021 - kl. 16:12
Viðburðadagatal um aðventuna

Blönduósbær ætlar að gefa út viðburðadagatal með dagskrá flestra þjónustuaðila, kirkjunnar, félaga, safna og skóla auk upplýsinga um tónleika, jólamarkaði og fleira sem fylgir aðventunni. Fyrirtæki, stofnanir, félög og einstaklingar sem standa fyrir viðburðum og þjónustu á aðventunni eru hvött til að senda inn upplýsingar. Viðburðadagatalinu verður dreift á öll heimili og fyrirtæki á Blönduósi og sveitum í kring.

Upplýsingar um viðburði er hægt að senda á Kristínu Ingibjörgu, Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa Blönduósbæjar á netfangið: kristin@blonduos.is eða í síma 455-4703 í síðasta lagi þriðjudaginn 16. nóvember nk.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga