Fréttir | 01. nóvember 2021 - kl. 20:11
Frítt í sund í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi dagana 1. til 5. nóvember
Þarf einungis að synda 50 metra til að fá frítt

Í tilefni af landsátaki í sundi dagana 1.-28. nóvember n.k. ætlar Blönduósbær að bjóða í sund dagana 1.-5. nóvember með því skilyrði að synda lámark 50 metra. Markmiðið með „Syndum“ er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Munum eftir því hvað sund er frábært!

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá sínar sundvegalengdir.

Þeir sem eiga notendanafn í verkefninu Lífshlaupið eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.

Syndum saman hringinn í kringum Ísland. Þeir metrar sem þú syndir safnast saman og á forsíðu www.syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt.

Á heimasíðu Syndum www.syndum.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið auk ýmiss annars fróðleiks og upplýsingum um sundlaugar landsins. Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt möguleika á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga