Frá undirritun viljayfirlýsingar. Mynd: verkis.is/Ráðbarður sf.
Frá undirritun viljayfirlýsingar. Mynd: verkis.is/Ráðbarður sf.
Fréttir | 02. nóvember 2021 - kl. 10:10
Verkís opnar starfsstöð á Hvammstanga

Verkfræðistofan Verkís opnaði starfsstöð á Hvammstanga í september með ráðningu Þóreyjar Eddu Elísdóttur umhverfisverkfræðings. Starfsstöðin er sú ellefta sem Verkís opnar á landsbyggðinni en þess má geta að í mars á þessu ári var starfsstöð opnuð á Blönduósi. Í síðustu viku styrkti Verkís starfsemi sína á Norðurlandi enn frekar með undirskrift viljayfirlýsingar við Ráðbarð sf. um að nýta slagkrafta hvors fyrirtækis fyrir sig til jákvæðs þjónustuframboðs á svæðinu með samstarfi.

Sagt er frá þessu á vef Verkís. Þar segir að samstarfið felst meðal annars í því að aðilar vísa verkefnum á hvorn annan eftir sérhæfingu eða vinnur verk fyrir hvorn annan ef slíkt hæfir eða hentar þeim aðilum sem að verkinu koma. Verkís mun leigja landmælingatæki af Ráðbarði og kaupa þar prentþjónustu.

Fyrirtækið Ráðbarður, sem staðsett er á Höfðabraut 6 á Hvammstanga, býður alhliða ráðgjöf og verkfræðiþjónustu á öllum stigum byggingaframkvæmda. Fyrirtækið getur einnig veitt ýmsa ráðgjöf og verkfræðiþjónustu á sviðum umhverfismála.

Meðfylgjandi er mynd af vef Verkís en á henni er Bjarni Þór Einarsson frá Ráðbarði, Þórey Edda Elísdóttir, Ari Guðmundsson og Ragnar Bjarnason frá Verkís.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga