Fréttir | 04. nóvember 2021 - kl. 09:16
Vegir á Norðurlandi vestan Eyjafjarðar

Húnvetningurinn Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri, flytur í dag á opinn málstofu í HA erindið „Vegir á Norðurlandi vestan Eyjafjarðar: Geta Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrókur orðið eitt atvinnusvæði?“ Í erindinu verða möguleikar á betri vegum milli bæjanna Blönduóss, Skagastrandar og Sauðárkróks skoðaðir. Betri vegir yfir Skagann milli þessara bæja fela óhjákvæmilega í sér jarðgangagerð.

  • Er kostur á því út frá vegalengdum og áreiðanleika nýrra vega að bæirnir verði eitt atvinnusvæði?
  • Með láglendisvegi milli Blönduóss og Sauðárkróks vaknar einnig spurningin hvaða áhrif það hafi á vegakerfið í heild vestan Eyjafjarðar.
  • Hvaða tækifæri felur það í sér?
  • Er hægt að fara í gegnum Tröllaskagann líka?
  • Hvernig ætti framtíðarvegakerfið á þessu svæði að vera?

Málstofan fer fram klukkan 12:10 – 13:00 í stofu M201 á Sólborg og einnig í streymi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga