Tilkynningar | 05. nóvember 2021 - kl. 18:31
Kirkjurnar í Austur-Húnavatnssýslu
Frá sóknarpresti

Kirkjustarf sunnudaginn 7. nóvember í Skagastrandar- og Þingeyraklaustursprestakalli:

Skagastrandarprestakall
Sunnudagaskóli í Hólaneskirkju kl. 11.00
Í sunnudagaskólanum syngjum við, heyrum biblíusögur svo koma Mýsla og Rebbi í heimsókn. Gæðastund fyrir unga sem aldna.

Þingeyraklausturprestakall
Sunnudagaskóli í Blönduóskirkju kl. 13.00
Í sunnudagaskólanum syngjum við, heyrum biblíusögur og svo koma Mýsla og Rebbi í heimsókn.

Styrkleikamessa í Blönduóskirkju kl. 20.00
Fermingarbörnin taka virkan þátt í messunni. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner.

Verið velkomin. Bryndís Valbjarnardóttir, sóknarprestur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga