Fréttir | 08. nóvember 2021 - kl. 13:56
Haustdagur ferðaþjónustunnar

Haustdagur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra verður haldinn á netinu miðvikudaginn 10. nóvember klukkan 15-17. Það eru Fagráð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem standa að Haustdeginum.

„Það er komin ágætis hefð á að ferðaþjónustan á Norðurlandi vestra taki stöðuna "síðla hausts" og velti upp ýmsu, sem er greininni mikilvægt. Þó að ekki hafi þótt ára fyrir samkomufund í þetta skiptið viljum við halda þessum góða sið,“ segir á vef SSNV.

Dagskráin er þessi:

  • Nýr vettvangur fyrir smá og meðalstór fyrirtæki – Sigmar Vilhjálmsson, Atvinnufjelagið
  • Hvað segja markaðirnir ?  - Arnheiður Jóhannsdóttir, Markaðsstaofa Norðurlands
  • Verður samband viðskiptavina og þjónustuaðila breytt eftir Covid ?  - Gústaf Gústafsson, Háskólinn á Hólum
  • Nú er QR !  - Sveinbjörg Rut Pétursdóttir,  SSNV
  • SSNV og ferðaþjónustan – Unnur Valborg Hilmarsdóttir SSNV

Fundarstjóri:  Davíð Jóhannsson, SSNV

Hlekkur á fundin er hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga