Fréttir | 09. nóvember 2021 - kl. 10:04
Fundað um úrgangsmál á Norðurlandi

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra stóðu nýlega í sameiningu að fjarfundi um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi. Á fundinum var fjallað um áskoranir sem sveitarfélögin standa frammi fyrir í tengslum við úrgangsmál.

Eygerður Margrétardóttir hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga ræddi um breytta úrgangsstjórnun sveitarfélaga og í kjölfar hennar kom Rakel Sigurveig Kristjánsdóttir frá Umhverfisstofnun og fjallaði um svæðisáætlanir, stöðu þeirra og hlutverk Umhverfisstofnunar í því sambandi. Að lokum sagði Helgi Þór Ingason frá forverkefni um framtíðarlausn til meðhöndlunar brennanlegs úrgangs í stað urðunar.

Sagt er frá þessu á vef SSNV og þar kemur fram að fundurinn hafi verið tekinn upp og því hægt er að sjá upptöku af honum hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga