Fréttir | 10. nóvember 2021 - kl. 09:12
Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir Pétur Pan

Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir í Félagsheimilinu Hvammstanga 11.-14. desember leikritið Pétur Pan eftir JM Barrie, í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjórn og leikgerð er í umsjón Gretu Clough. Fylgst er með ævintýrum Péturs Pan og uppátækjasömu álfavinkonu hans, Skellibjöllu, þegar þau heimsækja börn í Lundúnum kvöld eitt, efir að skyggja tekur.

Í tilkynningu frá leikflokknum segir:

Öll börn verða stór. Öll nema eitt.

Þegar leiðtogi týndu barnanna, Pétur Pan, týnir skugga sínum í heimsókn til Lundúna, hjálpar hin ákveðna Vanda honum að festa skuggan aftur við sig. Í staðinn er henni boðið til Hvergilands.

Árið 1904 frumsýndi JM Barrie eitt mesta ævintýri sem nokkru sinni hefur verið leikið á sviði. Uppfullt af hafmeyjum, sjóræningjum og álfum, ættbálki týndra barna og krókódílum, stútfullt af töfrum og tiltækjum. Pétur Pan er fyndin og áhrifamikil sviðsetning á sögu sem er elskuð og dáð. Verkið hentar áhorfendum á öllum aldri.

Við fylgjumst með ævintýrum Péturs Pans og uppátækjasömu álfavinkonu hans, Skellibjöllu, þegar þau heimsækja börn í Lundúnum kvöld eitt, eftir að skyggja tekur. Með hjálp örlítils álfaryks hefja þau töfrandi ferð meðal stjarnanna sem ekkert þeirra mun nokkurn tíma gleyma. Allt frá tifandi krókódílum til grimma stríðsmanna, brjálaðra sjóræningja og sjálfs illmennisins Króks kafteins, þetta skemmtilega og sígilda ævintýri mun gleðja alla aldurshópa. Pétur Pan er fullkomin sýning fyrir barnið eilífa í okkur öllum!

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga