Tilkynningar | 11. nóvember 2021 - kl. 10:44
Heimsóknartímar á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi, hjúkrunar- og sjúkradeild
Frá starfsfólki hjúkrunar- og sjúkradeilda HSN á Blönduósi

Að gefnu tilefni langar okkur að ítreka að heimsóknartímar eru frá kl.13-17 alla daga. Bóka þarf heimsókn fyrirfram í síma 432 4160 (sjúkradeild) og 432 4166 (hjúkrunardeild). Einungis má einn gestur mæta í einu og vera með grímu og fara beint inn á herbergi viðkomandi. Mælst er til að börn yngri en 12 ára komi ekki í heimsókn eins og stendur. Hjálpumst að við að verja okkar nánustu aðstandendur. Hlökkum til að fá ykkur í heimsókn.

Starfsfólk hjúkrunar- og sjúkradeilda HSN Blönduósi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga