Fréttir | 15. nóvember 2021 - kl. 18:23
Haustdagur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra velheppnaður

Haustdagur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra var haldinn á Zoom í síðustu viku og þótti heppnast vel. Þetta var í sjötta sinn sem dagurinn er haldinn og voru netgestir um fjörutíu talsins. Á fundinum voru flutt fimm áhugaverð erindi sem öll tæptu á efni tengdu greininni í ljósi núverandi stöðu og framtíðarhorfa að því leyti sem hægt er að ráða í þær, eins og segir á vef SSNV.

Fundurinn hófst á erindi Helgu Guðrúnar Jónasdóttur en hún situr í stjórn hins nýstofnaða Atvinnufjelags. Markmið félagsins er að láta sig varða áskoranir sem lítil og meðalstór fyrirtæki standa frammi fyrir. Helga Guðrún sagði m.a. fram að félaginu hafi verið vel tekið og það telji nú þegar á þriðja hundrað meðlimi.

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands gaf greinargóða yfirferð um hvernig starfsfólk MN hefur skynjað andrúmsloftið á þeim mörkuðum sem þau hafa verið að kynna landshlutann á upp á síðkastið og hvernig markaðsstofan hyggist vinna með þessa markaði næstu vikur og mánuði.

Gústaf Gústafsson aðjúnkt við ferðamáldeild Háskólans á Hólum velti fyrir sér spurningunni hvort samband viðskiptavina og þjónustuaðila verði breytt eftir COVID-19 og kom þar ýmislegt áhugavert fram sem vert verður að fylgjast með hvort og þá hvernig raungerist þegar fram líða stundir.

Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, hjá SSNV, hélt kynningu á QR kóðum og ýmsum möguleikum þeirra. Notkun á þeim hefur aukist gríðarlega síðustu mánuði sem svar við þörfinni á snertilausum samskiptum.

Að síðustu var svo Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV með yfirlit yfir helstu ferðaþjónustutengd verkefni á svæðinu, sem samtökin hafa komið að á liðnum árum eða eru í pípunum nú um stundir.

Upptöku af fundinum má finna á Facebooksíðu SSNV. 

Heimild: ssnv.is

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga