Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:42 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:42 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:42 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:42 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:42 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:42 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Foreldrafélag Barnabæjar gaf leikskólanum Barnabæ nýverið segulkubba, 220 stykki. Magna Tiles segulkubbarnir eru mjög vinsælir kubbar hjá þriggja ára og eldri. Segulkubbarnir eru tilvaldir til að efla sköpunargáfu barnanna, vísindi, tilraunir, stærðfræði og fleira, segir Sigríður Helga Sigurðardóttir leikskólastjóri í þakkarskeyti sem birt er á vef Blönduósbæjar.
Þar segir einnig:
„Skólinn hefur átt Magna Tiles kubba sem hafa verið það vinsælir að þeir eru alltaf í notkun og geta færri notað þá en vilja. Nú verður bragabót á þökk sé foreldrafélaginu að fleiri en ein deild getur verið með þá í notkun í einu.
Foreldrafélag Barnabæjar hefur í gegnum tíðina styrkt leikskólann Barnabæ í kaupum á góðum og vönduðum leikföngum sem hafa komið sér vel fyrir starfsemi skólans.
Ásamt því að styrkja leikskólann með gjöfum, þá sér foreldrafélagið um að skipuleggja litlu jólin, gefur jólagjafir til barnanna, sér um sumarskemmtun leikskólans og gefur útskriftargjöf til elsta hóps. Það er ómetanlegt fyrir skólann að hafa foreldrafélag sem styrkir og stendur þétt við bakið á skólanum.“
Leikskólinn Barnabær þakkar foreldrafélagi Barnabæjar innilega fyrir góða gjöf.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |