Fréttir | 16. nóvember 2021 - kl. 11:31
SSNV safnar jólagjafahugmyndum

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra ætla að safna saman jólagjafahugmyndum frá sölu- eða þjónustuaðilum í landshlutanum, sem gætu hentað fyrirtækjum í jólapakka til starfsfólks. „Verslun jólagjafa í heimabyggð er mikilvægur liður í eflingu atvinnulífs í landshlutanum og á það ekki síður við um fyrirtæki en einstaklinga,“ segir á vef SSNV.

Þau fyrirtæki eða framleiðendur sem selja vöru eða þjónustu, sem hægt er að kaupa í einhverju magni og hentar fyrirtækjum til gjafa til starfsfólks, geta nú skráð vöru- eða þjónustuframboð sitt. Upplýsingarnar verða svo birtar á heimasíðu SSNV og jafnframt á facebook síðu samtakanna.

Skráningin fer fram á eyðublaði sem aðgengilegt er hér.

Samtökin hvetja sem flesta til að skrá sig og svo eru fyrirtæki í landshlutanum hvött til að nýta upplýsingarnar og versla í sinni heimabyggð.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga