Mynd: Íslenska kóvid kortið á ruv.is
Fréttir | 30. nóvember 2021 - kl. 11:27
Þeim fækkar hratt sem eru í einangrun og sóttkví á Norðurlandi vestra vegna kórónuveirunnar. Samkvæmt vefnum covid.is eru nú þrír í einangrun í landshlutanum og fimm í sóttkví. Enginn annar landshluti getur státað af jafnfáum einstaklingum sem sæta þurfa takmörkunum vegna veirunnar.
Heldur færri eru að greinast með smit þessa dagana miðað við í síðustu viku. Í gær greindust 115 innanlands og þar af voru 51 í sóttkví við greiningu eða 43,5%.
Fjöldi í einangrun og sóttkví eftir landshlutum:
Aðsetur Einangrun Sóttkví
Höfuðborgarsvæði 1039 1229
Suðurnes 200 214
Suðurland 60 67
Austurland 15 47
Norðurland eystra 67 69
Norðurland vestra 3 5
Vestfirðir 35 32
Vesturland 99 129
Óstaðsett 23 24
Einnig má sjá íslenska kóvid-kortið á vef Ríkisútvarpsins.