Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 30. nóvember 2021 - kl. 15:17
Ljósin tendruð á jólatrénu á Hvammstanga

Ljósin á jólatrénu við Félagsheimilið á Hvammstanga voru tendruð á föstudaginn. Vegna sóttvarnatakmarkana var ekki hefðbundin dagskrá en börn í 1. - 4. bekk Grunnskóla Húnaþings vestra voru viðstödd, gengu kringum jólatréð og sungu jólalög. Jólasveinar litu við og séra Magnús Magnússon flutti ávarp.

Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra og þar eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að njóta aðventunnar í faðmi fjölskyldunnar.

Horfa má á smá brot af athöfninni hér.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga