Helga Margrét. Mynd: hsn.is
Helga Margrét. Mynd: hsn.is
Fréttir | 01. desember 2021 - kl. 14:37
Helga Margrét ráðin í stöðu yfirhjúkrunarfræðings svæðis á Blönduósi

Heilbrigðisstofnun Norðurlands hefur ráðið Helgu Margréti Jóhannesdóttur í stöðu yfirhjúkrunarfræðings svæðis á Blönduósi og mun hún hefja störf 1. febrúar 2022. Helga útskrifaðist sem sjúkraliði frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 2014 og sem hjúkrunarfræðingur frá háskólanum á Akureyri 2019. Í vor lýkur hún mastersnámi í heilbrigðisvísindum frá háskólanum á Akureyri með áherslu á stjórnun í heilbrigðisþjónustu.

Helga hefur m.a. sinnt störfum á öldrunarheimilum, í heilsugæslu og á barnadeild. Þá hefur hún verið mjög virk í félags- og nefndarstörfum sem og sjálfboðaliðastörfum innanlands sem erlendis. Sagt er frá þessu á vef HSN.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga