Tilkynningar | 16. desember 2021 - kl. 17:03
Skagfirski kammerkórinn heldur jólatónleika

Skagfirski kammerkórinn heldur sína árlegu jólatónleika föstudaginn 17. desember klukkan 20 í Blönduóskirkju og sunnudaginn 19. desember klukkan 16 og 18 í Hóladómkirkju. Stjórnandi er Helga Rós Indriðadóttir og organisti Rögnvaldur S. Valbergsson. Enginn aðgangseyrir, en í Blönduóskirkju frjáls framlög til styrktar orgelsjóði.

Vinsamlega athugið að vegna samkomutakmarkana þarf að bóka sæti á tónleikana í Hóladómkirkju í síma 846 2582.

Sérstakir gestir:
Áróra Ingibjörg Birgisdóttir
Emilia Kvalvik Hannesdóttir
Hallgerður Harpa V. Þrastardóttir
Harpa Sóllilja Guðbergsdóttir
Heiðdís Rós Hafrúnardóttir
Matthildur Ingimarsdóttir
Ragnhildur Sigurlaug Guttormsdóttir

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga