Tilkynningar | 17. desember 2021 - kl. 15:12
Frá Heimilisiðnaðarsafninu

Annað árið í röð er ekki hægt að bjóða upp á viðburðinn „Upplestur á aðventu“ vegna Covids faraldursins. Þessi viðburður hefur ævinlega verið vinsæll og margt heimafólk sótt safnið heim og að afloknum upplestri notið samvista, sötrað súkkulaði og maulað smákökur.

Eigi að síður verður safnið opið sunnudaginn 19 desember frá kl. 14:00 til 16:00 og á miðvikudaginn 22. desember frá kl. 14:00 til 16:00

Aðgangur verður ókeypis og á boðstólum heitt súkkulaði, kaffi og smákökur.

Minnt á litlu safnbúðina þar sem hægt er að fá sitthvað í jólapakkann.

Verið velkomin!

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga