Fréttir | 20. desember 2021 - kl. 11:22
Jólapóstur á Skagastönd

Á vef Skagastrandar kemur fram að samningar hafi náðst við jólasveina um að bera út pakka og bréf. Þeir sem vilja nýta sér þjónustuna geta hitt umboðsmenn jólasveinanna við kennarainngang Höfðaskóla á morgun, þriðjudaginn 21. desember klukkan 18-20. Jólapósturinn verður svo borinn út á Þorláksmessu, 23. desember milli klukkan 16 og 18.

Bréf kostar 100 krónur, pakki 500 krónur. Enginn posi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga