Mynd: mast.is
Mynd: mast.is
Fréttir | 21. desember 2021 - kl. 09:55
Hvetja til jóla án matarsýkinga

Matvælastofnun hefur tekið saman upplýsingar um meðhöndlun matar um hátíðirnar enda verður mikið álag á eldhúsum landsmanna næstu daga. Hreinlæti, kæling og rétt hitun matvæla er afar mikilvæg svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum, segir á vef MAST.

„Sjúkdómsvaldandi bakteríur geta borist inn í eldhúsið með kjöti og jarðvegi sem fylgir grænmeti og borist þaðan í önnur matvæli á eldhúsborðinu eða í ísskápnum. Einnig geta þær borist í matvæli frá þeim sem meðhöndlar matvælin og frá þeim búnaði og áhöldum sem eru notuð í eldhúsinu.

Nóróveirur geta dreift sér hratt á jólunum og mikilvægt að einstaklingar með einkenni matarborna sjúkdóma haldi sig frá matargerð. Reglulegur handþvottur minnkar líkur á smiti milli aðila eða frá menguðum matvælum.“

Bent er á að hafa í huga:

  • Hrátt kjöt og safi úr því á ekki að komast í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu.
  • Þvoum ávexti og grænmeti til að koma í veg fyrir að bakteríur berist í matvæli sem eru tilbúin til neyslu.
  • Þvoum hendur áður en hafist er handa við matreiðslu og eftir snertingu við hrátt kjöt og óþvegið grænmeti.
  • Þrífum skurðarbretti og áhöld strax eftir notkun.
  • Skipuleggjum ísskápinn vel og höldum honum hreinum til að koma í veg fyrir krossmengun.
  • Skiptum reglulega um borðtuskur, viskastykki og handþurrkur

„Bakteríur fjölga sér mjög hratt við kjöraðstæður. Við 37°C getur ein baktería fjölgað sér í 1000 á 3 tímum og í 1 milljón á 6 tímum.  Það er því mikilvægt að geyma og meðhöndla matvæli við það hitastig að komið verði í veg fyrir hraða fjölgun baktería með því að takmarka þann tíma sem viðkvæm matvæli, s.s. reyktur og grafinn fiskur og álegg er á borðum við stofuhita.  Mest hætta er á fjölgun baktería þegar hitastig matvælanna er milli 5 og 60°C.  Nægileg hitameðhöndlun drepur bakteríur og geymsla við kælihitastig (0-4°C)  takmarkar fjölgun þeirra. Ef halda á matvælum heitum skal þeim haldið við 60°C og við kælingu hitaðra matvæla skal gæta þess að þau nái 4°C á 3 tímum.

Landsmenn eru hvattir til að tileinka sér hreinlæti, rétta meðhöndlun og kælingu matvæla í eldhúsinu svo koma megi í veg fyrir að matarbornir sjúkdómar spilli jólagleðinni.“

Sjá nánar á vef Matvælastofnunar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga