Holur á Vatnsnesvegi
Holur á Vatnsnesvegi
Fréttir | 21. desember 2021 - kl. 23:18
Vill flýta framkvæmdum við Vatnsnesveg

Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, spurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag, hvort hann hyggist beita sér fyrir því að framkvæmdum við Vatnsnesveg verði flýtt enn frekar og meira fjármagni veitt til þess að svo megi verða. Ráðherra sagði veginn sannarlega ekki í ásættanlegu ásigkomulagi en það ætti reyndar við um fleiri malarvegi landsins.

Í fyrirspurn sinni sagði Bjarni að vegurinn væri stórhættulegur og úr sér genginn og að hann stæði engan veginn undir þeirri umferð sem um hann færi. „Þar er ekki einungis vaxandi umferð ferðamanna sem skiptir miklu fyrir héraðið, heldur er vegurinn lífæð byggðarinnar og ekið daglega með skólabörn holótta skemmda vegi, þar sem jafnvel stuttar vegalengdir verða að dagpörtum á ferðalagi við ömurlegar og viðsjárverðar aðstæður,“ sagði Bjarni og telur nauðsynlegt að byggja veginn upp, breikka og leggja á hann bundið slitlag sem allra fyrst. 

„Vatnsnesvegur er enn áætlaður á þriðja tímabili samgönguáætlunar, nokkuð sem íbúar landshlutans geta ekki við unað og við sem hér störfum ættum ekki heldur að gera. Fyrir liggur að aftur verði boðinn út 2-3 km kafli við Hólabrú í Vesturhópi á nýju ári og svo 5 km kafli á vestanverðu Vatnsnesi og er það vel. Hér þarf hins vegar miklu meira til en smáskammtalækningar frá einu ári til þess næsta,“ sagði Bjarni jafnframt í fyrirspurn sinni og bætt við að fara þurfi í aðgerðir strax við uppbyggingu á veginum þannig að hann geti gegnt því mikilvæga hlutverki sem honum er ætlað.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, benti á að stjórnvöld hefðu verið með einn milljarða á samgönguáætlun í tengivegi en að Vatnsnesvegur kosti yfir þrjá milljarða. „Það sem búið er að gera er það sem háttvirtur þingmaður nefndi réttilega, útboð á brú yfir Vesturhópshólaá ásamt 2,2 km vegarkafla sem átti að leggjast á síðasta ári. Ekkert tilboð barst í verkið en það verður boðið út að nýju á þessu ári. Á sama tíma hefur verið í undirbúningi og hönnun rúmlega 5 km kafla frá Kárastöðum að Ánastöðum sem er líka ráðgert að bjóða út á næsta ári. Hér er því verið að tala um framkvæmdir fyrir 500–600 milljónir. Síðan er rétt að restin hefur verið tekin út fyrir sviga og sett sérstaklega á samgönguáætlun, er sem sagt ekki lengur í tengivegapottinum, og eru áætlaðir í það um 2,5 milljarðar. Það er á þriðja tímabili samgönguáætlunar sem er langt í en um er að ræða 69 km langan veg,“ sagðir Sigurður Ingi á Alþingi í dag og bætti við að þegar samgönguáætlun kæmi inn í þingið þá treysti hann á að Bjarni og aðrir þingmenn yrðu tilbúnir að veita meira fé í uppbyggingu tengivega um land allt.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga