Fréttir | 26. desember 2021 - kl. 12:53
Flugeldasýning en engin brenna á Hvammstanga

Björgunarsveitin Húnar verður með sína árlegu flugeldasýningu á Hvammstanga á gamlárskvöld klukkan 21 en vegna samkomutakmarkana verður engin brenna. Flugeldasýningin er í boði einstaklinga og fyrirtækja á svæðinu. Skotið verður upp af norðurgarði Hvammstangahafnar og er mælst til að áhorfendur hópist ekki saman niður við höfn vegna veirufaraldursins, heldur haldi sig með sínu fólki vítt og breytt um svæðið.

Hægt er að taka göngutúr og finna góðan stað til að horfa, en margir góðir og flottir áhorfendastaðir eru út um allan bæ. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga