Valli í bolnum góða. Mynd: FB/Valli Blönduósi
Valli í bolnum góða. Mynd: FB/Valli Blönduósi
Fréttir | 28. desember 2021 - kl. 10:01
Fékk bol með áletruninni Blönduós sefur aldrei

Á vef Feykis er skemmtileg frétt um Valdimar okkar Guðmannsson en hann er mjög ötull talsmaður Blönduóss og allt það sem húnvetnskt er. Hefur hann óspart notað Facebook til að segja frá því góða og skemmtilega sem fram fer í heimabæ sínum. Oftar er en ekki endar Valli, eins og hann er oftast kallaður, á orðunum "Blönduós sefur aldrei."  

Um jólin fékk Valli góða jólagjöf frá afastelpunni sinni, Stefönu Björgu Guðmannsdóttur, 13 ára nemanda í Blönduskóla. Hún fékk þá snjöllu hugmynd að festa kjörorð afans á bol og gefa honum.

Valli birti auðvitað mynd af sér á Facebook í bolnum góða og segir „Þrátt fyrir að Stefana sé ú mest í marki þá hitti hún beint í mark með jólagjöfina fyrir afa sinn.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga