Fréttir | 28. desember 2021 - kl. 10:33
Feykir velur mann ársins á Norðurlandi vestra

Eins og undanfarin ár stendur héraðsfréttamiðillinn Feykir fyrir kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra. Íbúum á svæðinu og öðrum lesendum Feykis gefst kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta skiptið bárust sjö tilnefningar sem teknar voru til greina, þarf af er einn Blönduósingur, Bóthildur Halldórsdóttir.

Hægt verður að greiða atkvæði á vefnum Feykir.is eða senda atkvæði í pósti á: Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkróki. Kosning er þegar hafin og lýkur klukkan 12 á hádegi á nýársdag, 1. janúar.

Skoða má þá sem tilnefndir eru hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga