Mynd: AST Norðurland vestra
Mynd: AST Norðurland vestra
Fréttir | 29. desember 2021 - kl. 22:23
Tuttugu og þrír í einangrun á Norðurlandi vestra vegna COVID-19

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra sendi frá sér tilkynningu í dag og birti nýjustu töfluna yfir kórónuveirusmit í landshlutanum. Samkvæmt henni eru 23 í einangrun og 39 í sóttkví vegna COVID-19. Aðgerðastjórnin minnir sérstaklega á handþvott, sprittun, fjöldatakmarkanir og nálgunarregluna og biður fólk að forðast hópamyndun.

Aðgerðastjórn brýnir einnig fyrir fólki með einkenni að halda sig heima, hafa samband við heilsugæslu, og halda sig til hlés þar til fullvíst sé að ekki sé um kórónuveirusmit að ræða. Þá minnir hún á fyrri tilmæli til íbúa að halda ferðalögum á milli landshluta í lágmarki og forðast ferðalög til höfuðborgarsvæðisins sem og til annarra svæða sem talin eru útsett fyrir smitum eins og kostur er. Mælst er til að öllum ferðum sem hægt sé að fresta, sé frestað á meðan núverandi ástand varir.

Aðgerðastjórn minna jafnframt fyrirtæki og stofnanir á svæðinu á áætlanir um órofinn rekstur starfseininga. Í því felst að fyrirtæki og stofnanir geri áætlun um hvernig bregðast eigi við ef upp kemur smit þannig að hægt verði að halda úti lágmarks starfsemi og þjónustu við íbúa svæðisins. Aðgerðastjórnin beinir tilmælum til þeirra fyrirtækja og stofnana sem ekki hafa komið sér upp slíkri áætlun að gera það hið fyrsta.

„Sýnum skynsemi næstu daga og vikur, tökumst á við verkefnið með samstöðu að vopni og bros á vör því aðeins þannig náum við árangri. Förum varlega, munum sóttvarnirnar og minnumst þess að öll erum við almannavarnir,“ segir í tilkynningunni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga