Dagbjört Dögg. Mynd: usvh.is
Dagbjört Dögg. Mynd: usvh.is
Fréttir | 29. desember 2021 - kl. 22:31
Dagbjört Dögg íþróttamaður USVH 2021

Dagbjört Dögg Karlsdóttir körfuknattleikskona hefur verið kjörin Íþróttamaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga árið 2021. Dagbjört Dögg var valin varnarmaður ársins í úrvalsdeild kvenna í vor og er byrjunarliðsmaður í A landsliði Íslands. Liðið hennar Valur varð Íslands- og deildarmeistari á síðasta tímabili.

Í dag er Dagbjört með bestu þriggja stiga nýtingu í úrvalsdeildinni og á meðal stigahæstu íslensku leikmönnum deildarinnar. Hún er lykilleikmaður í Val og hefur þrisvar sinnum verið valin í lið umferðarinnar það sem af er tímabilinu og er hún með 17,22 sig að meðaltali í leik.

Í öðru sæti í kjörinu varð Viktor Ingi Jónsson knattspyrnumaður og í þriðja sæti varð Helga Una Björnsdóttir hestaíþróttakona.

Sökum aðstæðna í samfélaginu vegna COVID-19 verður ekki formleg verðlaunaafhending í ár.

Sagt er frá þessu á vef USVH.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga